Hljómsveitirnar Mínar
29.12.2006 10:52:11 / stefnirg

Heybs

halló... þetta er gaman, að skrifa hér eftir svona langan tíma, ég veit ekki alveg hvað ég á að segja.

Líf mitt er yndi...

#1 Lada Sport byrjar að taka upp disk eftir 2 vikur, ég og jón liggjum yfir því þessa dagana og hugum að hverju smáatriði í hverju lagi fyrir sig... eitt sem ég get lofað, það verður ótrúlegur mettnaður í þessum disk! svo er annað hvort fólk egi eftir að kaupa ótrúlega súrar hugmyndir okkar. mér er samt í raunini sama hvað gerist, ég mun bara verða ótrúlega sáttur með að hafa komið hugmyndum mínum niður á fast form og geta sagt með stolti "Ég var partur af þessu" mér er sama þó enginn nema mömmur okkar kaupi diskinn... ég hef mikið hugsað um að gera lítið upplag af vinyl útgáfum af diskinum, ég held að það væri ÓTRÚLEGA gaman að eiga! aðalega þó fyrir okkur, kanski BX líka, hann er sætur!

#2 ég legji enþá á sama ótrúlega svala stað niðrí bæ! með sama ótrúlega svala strák (hann er í hljómsveit á barmi heimsfrægðar skilst mér) eini gallinn er að þeir þarna í stripp hóru klúbbinum á neðstuhæðinni tóku ágætlega smekklega teiknimynda dúttlið úr gluggunum og settu í stað þess mynd af ótrúlega gerfilegri plast stelpu sem vekur alveg allar vondar tilfynningar sem tengjast mannlegum samskiptum á sama tíma! og já þeir reyndu ekki einusinni að gera eitthvað við hinn gluggan þeir skrifuðu bara fucking "PARTY" tólf sinnum á hann... hvað er málið með það! þetta er samt Luxus staður þarna uppi, ekkert mun breita því ;)

#3 Mér lýður ótrúlega vel með það að vera með nýja og sérstaka manneskju í lífi mínu. ég kyntist henni nýverið og mér lýður bara ótrúlega vel í kringum hana án þess að þurfa nokkuð að hugsa um það! þannig eiga öll sambönd milli vina að vera! ef þú þarft að reyna á þig þá er það ekki þess virði held ég... svo getur maður átt kunningja sem er allt annað. allavegana, þessi manneskja er fullkomlega ný í mínu og margra í kringum mig lífum, en ég veit að hún hefur gert þau öll töluvert betri! hún er klár og skemtileg, hún er líka þýsk og indie! og okkur þykjir það gott að dansa við lost in translation soundtrackið!


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.07.2006 02:38:46 / stefnirg

heyhey

langar bara að skrifa smá hérna uppá djókið .. ég á afmæli eftir 5 daga .. eftir 5 FUCKING daga verð ég búinn að vera hér í 20 ár .. vá fokk sjit.. það er frekar klikkað .. ég er bara að vinna alltaf .. landspítalanum .. hitti gaur með svona takka á hálsinum í dag vegna þess að hann var búin að reykja of mikið og hann gat talað eins og vélmenni .. það var BRJÁLAÐ!! mér leið eins og ég þyrfti að enda allar setningar á "OVER AND OUT" eða "ROGER" ... en gerði það ekki því hann hefði líklegast lamið aumingjast "litla" stefni.. en já eins og áður kom framm .. þá á ég afmæli eftir 5 daga .. og ég hef enginn plön fyrir 20 ára afmælið mitt :( þa hefur enginn sagt .. hey gerum eitthvað skemtilegt á afmælinu þínu .. eða ég skal bjóða þér út að borða .. eða .. neitt bara .. og þetta er "stór"afmæli .. WTF .. ÞIÐ ERUÐ EKKI AÐ STANDA YKKUR ÞARNA .. ég ættla sko EKKI að vera einn á tvítugs afmælinu mínu :S ef ALLIR beila fer ég bara á eitthvern geðveikt sjabbí stað niðrí bæ og heng með eitthverjum rónum .. SEM KUNNA AÐ META MIG .. BJATSES!!!! bless kex ..

» 2 hafa sagt sína skoðun

19.06.2006 03:05:29 / stefnirg

10 Bestu Plötur Heimsins (says áttavitinn)

JAHÁHÁ.. ég hef sett saman hérna topp 10 bestu plötur ALLRA tíma (af mínu mati) og bara .. ef þið nennið að lesa já .. ég hef bara ekkert betra að gera! gaman.. ég veit

010 - Úlpa - Mea Culpa
þetta mun hafa verið frumraun Íslensku hljómsveitarinnar Úlpu. þeir koma af mestu eða öllu leiti úr hafnafirði og auðvita passa sig öll blöð að það komi fram allstaðar sem um þá er skrifað, af eitthverjum óútskýranlegum ástæðum.. allavegana, þessi plata er mjög heilsteipt og virðist vera mjög útpæld, byrjar í svoldið druggy stemmingu með fullt af delay pælingum, röddunum sem eru mjög spes og löngum introum, rennur svo í meira svona meinstrím indie pakkann (sem var kanski ekkert svo meinstrím á tímanum sem platan kemur út) endar svo á svona þungum og fallegum melódíum sem maður á það til að fá á heilan þegar maður er í slæmu skapi af eitthverjum ástæðum.. vildi að þeir hefðu lagt sömu pælingar í lögin og upptökunar á annari plötuni og á þessari. Þó það hljómi ílla þá vita það allir sem hlusta á þessa plötu að það er ótrúlega gott að sofna yfir henni.. mjög vel meint..
topp löginn ...
7 - fram að 3. degi (minnistæðasta gítar lína disksins, og þó víða væri leitað)
8 - Kar (besti endir á lagi í heiminum, eina lagið sem ég man eftir að hafa tárast yfir.. því ég er EMO)

009 - Modest Mouse - Good News for people who love bad news
Þetta er plata nr.6 hjá þeim M&M liðum .. eina platan sem ég kemst í gengum með þeim líka .. hún er alveg FÁRÁNLEGA vel pródúseruð og ég heyrði nú eitthverntíman að sá sem hefði verið mest hissa með gæðin á lögunum og plötunni sem heild hefði verið pródúserinn því að hann hélt að þeir strákanir hefðu þetta nú bara ekki í sér..  þessi plata byrjar vel og heldur svo bara uppávið .. þetta er held ég alveg mjög vanmetin plata og ef fólk gæfi henni meiri séns færi hún á fleirri svona lista því að hún inni heldur alveg ótrúlega minnistæð lög og maður getur raulað ÖLL löginn hvenar sem er og brosað .. bjargaði heilum vetri hjá mér sem annars hefði verið mjög dapur.
topp löginn..
4 - Ocean breathes salty (yndislegar beigjur og lagið flýtur svo ótrúlega vel, eins og nafnið gefur til kynna)
10 - The view (besta dans diskó lag seinni ára, hugsa alltaf þegar ég heyri það að ég mundi gefa lífið fyrir að vera bassaleikarinn í hljómsveitinni)

008 - Gnarls Barkley - St. Elsewhere
Tvíeikið Cee-lo og Danger Mouse komu inn bara á þessu ári með ferskasta sound sem hefur heirst lengi undir nafninu Gnarls Barkley og það er langt þangað til að þetta verður toppað.. þetta er nú bara ein fjölbreittasta plata sem ég hef hlustað á, ber með sér allar stefnur sem hún getur og kemst alveg ÓTRÚLEGA upp með það, þarna er blús, hip hop, rokk, electro o.s.f... auðvita fer fólk að verða þreitt á þeim þar sem þeir eiga nú einusinni mega hitterinn Crazy sem er í stöðugri spilun á vafasamari klúbbum og útvarpstöðum landsins en það lag er langt frá því að vera toppurinn á plötunni og bara langt frá öllu í raun .. samt lagið sem kveikti minn áhuga og öruglega nánast allra aðra sem hafa hlustað á plötuna.. en já þessi plata er MJÖG heilsteipt og hún rennur í gegn eins og heitur hnífur gegum smjör, röddinn í honum Cee-lo er alveg FÁRÁNLEGA góð og fjölbreitt og þú fynnur varla betri mann í laga samsettningum og pródúseringar pælingum heldur en Danger Mouse.. ef hún væri ekki svo ný að ég væri í raun enþá að melta hana mundi ég setja hana hærra á listann.
topp löginn...
4 - Gone Daddy Gone (cover af gömlu Willie Dixon lagi, mjög vel gert og flott)
8 - Just A Thought (frábær texti og yndislegar trommur á fallegum grunni)

007 - Sparta - Wiretap Scars
Frumraun þryggja fyrverandi meðlima At the Drive-in plús bassaleikarans Matt Miller. Þetta er öruglega þéttasta og mest öruggasta plata sem ég hef heyrt, og pottþétt vanmettnasta plata alheimsins .. náði aldrei vinsældum á við Atdi, enda er eru það ótrúleg spor að filla í. En að heyra Jim Ward taka stöðu sem aðal söngvara í stað bak radda er æði því að hann er með ROSALEGA séstaka rödd og öskrin eru óaðfynnaleg. en þessi plata flítur í gegn og heldur manni alveg 100% við efnið allan tíman og maður vill eginlega láta hana bara ganga nokkra hringi.. hún reddaði mér gegnum svakalega langan vetur þegar ég bjó útí rass og þurfti alltaf að vera einn eitthvað í kofanum mínum útá miðju túni frá húsinu okkar.. hann var í botni allan sólahringinn bókstaflega. ef þið viljið heyra ekta rokk vel spilað þá mæli ég með þessum disk. ekkert meir að segja í raun, bara að þetta er eitthvað sem enginn má missa af
topp löginn...
2 - Air (fattaði það lag frekar seint og það varð alveg eftir í mér sem toppurinn á plötuni í langan tíma)
8 - Cataract (ótrúlega fallegt og einlægt lag sem ég tel vera svona eitt af  3-4 bestu lögum allra tíma)

006 - Interpol - Turn on the bright Lights
Enn og aftur kemur önnur frumrauninn, þessi plata frá NY strákunum Interpol sem virðast hafa geta gert plötu fulla af lögum sem hefði öll geta gengið sem singular (af mínu mati) þetta er róleg plata og alveg toppurinn á Indie-inu, kom mér uppá það að singja, einn heima (bjó einn í tvo mánuði í 250 fm2 húsi í hfj, reddaði mér RISA hátölurum og pantaði mér dominos ALLTAF og æfði mig að singja með Interpol) þessi plata er rosalegt sumar fyrir mér, minnir mig á félaga mína þá Heimi og Óla Tómas (sem eru yndislegir) og bara að vera að henda tölvuskjám útúr bílum á ferð og að ganga inní búðir og taka bara það sem manni langaði í og labba út (enginn af okkur gerir það lengur þó 8|) ég veit ekki hvort að mér fynnist þessi plata svona góð vegna þess að ég tengi hana við bara MJÖG góða tíma eða þá að hún sé svona svakalega góð bara yfir höfuð.. en hún er allavegana þess virði að kíkja betur á hana ef þú hefur ekki gert það. inniheldur alveg mega hittera sem allir geta dansað í klessu við.
topp löginn...
2 - Obstacle 1
11 - Leif Eirikson

005 - Isidor - Betty Takes A Ride
úff sko .. ÚFF.. ég hlustaði nú tvisvar á þessa plötu í gegn áðan, einusinni í í bílnum á leiðinni og svo aftur þegar ég kom heim þetta er alveg 100% besta Instrumental band frá upphafi, soundið á plötunni er nú ekki beint uppá marga fiska en ég veit að sá sem tók þá upp getur gert alveg FÁRÁNLEGA betur í dag. en það hefur samt lítil áhrif á gæðin og er eginlega bara sjarmerandi ef maður hugsar þetta með réttu hugarfari. og aftur er þetta frumraun, í þetta sinn eru þetta íslenskir hönks .. og í dag er ég svo heppin að vera með einum af þeim í hljómsveit (Jóni þór a.k.a.Dan "cool" San ... STATION). það er ekki fyndið bara hversu vel gítaranir smella saman og hversu trommuleikurinn er hraður og fáránlega þéttur og hve bassinn er með yndislegar línur, platan væri ekki til án hans. þó svo að ég hafi sagt að þeir væru  instrúmental eru þeir ekki lausir við allar raddir. Jón Þór syngur "singúlinn"  Baby do you want to take a ride, sem er alveg svakalegur og maður fær að heyra Steingrím bassaleikara "perrast" í laginu Undanrenna. svo er líka mjög töff dialog í laginu Offend the censors. en já s.s. með þessum skrifuðu orðum nefni ég plötuna næst bestu íslensku plötu frá upphafi.og loka á þessum orðum "BABY... TAKE THE RIDE!"
topp löginn...
5 - Baby do you want to take a ride
8 - ógleði


004 - The Postal Sevice - Give up
jæja.. hér komum við útí það sem kom mér í Electroið, frontari bandsins Ben Gibbard sem er líka frontari Death cab for cutie singur og semur mikið og er með þessa líka YNDISLEGU og fallegu rödd sem ég öfunda meira en allt annað. og textanir hans eru ótrúlega flottir alveg allir. og alveg SVAKALEGAR syntha pælingar sem allir ættu að taka sér til fyrir myndar, vel uppsett og soundandi lög þarna í gangi .. annar meðlimur bandsins er Jimmy Tamborello sem ég mundi giska að sæi um þessar syntha pælingar. og ekki eru trommunar verri .. þær erum hreint ekki verri ónei kallinn.. shit, sko .. þessi plata er bara rugl mikið diskó, en nú er ég hættur að meika sens.. allavegana það er eginlega ekki hægt að setja þessa plötu niðrá blað, þetta er bara eitthvað sem maður verður að upplifa! og gerið það endilega. ótrúleg heild og fallegar raddir, Ben Gibbard og Jen Wood sem mynda hið fullkomna dúel sönglega séð og synthanir.. óóó synthanir..
topp löginn...
4 - Nothing Better (Hlustiði á raddinar og þegar þau skiptast á, það er bara RUGL hvað það er yndilsegt, samt mjög sorglegur og erfiður texti, svona þegar maður þekkjir þetta)
9 - Brand New Colony (Nintendo nes .. já takk)

003 Ensimi - Kafbátamusik
já.. en önnur frumraunin og sú sem ég nefni bestu Íslensku plötu allra tíma, tengi hana við ákveðna manneskju sem mér þykjir alveg svakalega vænt um og alveg öruglega bestu tíma í mínu lífi. þetta sound á plötunni er svakalega gott og hefur verið mjög ferskt á sínum tíma. inniheldur alveg ótrúlega vel uppsett lög er því oftar sem maður hlustar á plötuna virðist hún bara verða betri og betri, þetta er plata sem eldist alveg svakalega vel og mun halda áfram að gera það og vekja athygli fyrir góða laga smíð og skemtilegar pælingar. þessir menn eru nú eitthverjir mest eftir tekta verðu menn í tónlista bransanum í dag og meðlimir ensíma hafa farið og komið og hafa þeir prítt og spilað með böndum eins og Bang Gang, Bubba, Jet Black joe, Kung-fu, Rass og Dr.spock, þó er ég öruglega að gleima einum eða tveim böndum en allavegana .. þessi plata er ótrúlega þétt og vel spiluð frá upphafi til enda MJÖG flottar syntah pælingar þar í gangi. flott rödd líka. mæli bara endregið með henni ef ykkur langar að tékka á eitthverju og eruð ekki nú þegar búin að kynna ykkur þessa snilld.
topp löginn..
1 - Flotkví (fyrir endan, það er bara RUGL góður hvað seinustu tvær mínótunar eru ótrúlegar)
5 - Conga (ótrúlega fallegt og yndislegt lag og mynnir mig alltaf á það besta sem hefur NOKKURN tíman komið fyrir mig)

002 - The Mars Volta - De-Loused in the Comatorium
þetta mun vera ein mesta heild sem hefur komið út á geisladisk. ég hataði þennan disk samt fyrst þegar hann kom út, ég hélt með spörtu og eins og margir vita þá var mikill rígur milli spörtu og mars volta aðdáanda vegna þess að mars volta ynniheldur jú hina tvo úr at the drive in .. þeir sem ekki fóru í spörtu. en ég held að allir hafi áttað sig á því að það gæti ekki verið heimskulega að hlusta ekki bara á bæði því að þetta eru fáránlega góðar hljómsveitir! og þessi diskur er bara að mínu mati það næst besta sem hefur verið gefið út í heiminum. heldur manni alveg við efnið frá fyrstu sekóndu alveg útí blá endan. og því oftar sem maður heyrir hann og fer að læra inná öll þessi breik og þessar takt pælingar þá kemst maður af því hversu mikið meistaraverk þetta er. platan er hugmyndaplata.. s.s gengur útá eina heild og hugmynd sem líður í gegnum plötuna, hún er að miklu leiti unnin út frá söknuði þeirra á æsku vini sínum Julio Venegas sem tók líf sitt. þeir eru alveg fáránlega útpældir á þessari plötu og greinilegt að í þeim er mikil sköpunargleði, mikið af þéttleika plötunar er samt að þakka OFUR pródúserinum Rick Rubin (einn stofnanda Def Jam útgáfunar t.d.), þeir fá að vísu líka alveg fáránlega færa gesta leikara á plötunni, t.d. spila flea úr RHCP allan bassan á plötunni og john úr sama bandi tekur sóló og spilar á gítar.. en allavegana.. þetta er eitthvað sem maður verður að gefa smá séns frá byrjun og með tímanum kemur í ljós þetta stórbrotna meistaraverk sem engin getur látið framhjá sér fara..
topp löginn..
6 - Eriatarka
7 - Cicatriz ESP

001 - At The Drive In - Relationship of Command
oki.. sko .. sko.. nú síni ég þér.. SETTU DISKINN Á OG DEIJÐU ÚR GLEÐI NÚNA!!!! NÚNA.. þetta er án efa besti diskur allra tíma og ég hef verið á þeirri skoðunn í svona 3-4 ár núna að þessi diskur verði aldrei toppaður og ég fann þennan disk með því að fá hann lánaðan hjá frikka vini mínum (bassaleikari í lödu sport og öruglega sá eini sem á eftir að lesa þetta.. ef svo mikið) og ég brendi hulstrið af hans eintaki á ofninum hjá mér og þurfti þess vegna að kaupa nýjana og hirti gamla, talandi um lán í óláni.. en..  allavegana.. þessi diskur er bara pottþétt það besta sem hefur komið út, hlaut að koma að því að ég nefndi þessa gaura þar sem ég er búinn að nefna þá alla áður í öðrum hljómsveitum (#2 og #7) ég nenni ekki að útskíra hversu ótrúlega góð þessi plata er en ef þið bara setjið hana í gang komist þið að því að ég er að segja satt.. bara .. ummm.. já NÚNA PLAY..
topp löginn...
ÖLL FUCKING LÖGINN .. VARSTU EKKI AÐ HLUSTA!

takk fyrir mig .. Lingsi mega


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.06.2006 21:09:40 / stefnirg

jæja

kominn með vinnu, landspitalinn... langar burt .. platan enþá í vinslu.. ég enþá súr .. ég hata mikið af fólki samkvæmt nyjustu fréttum .. og allt er svona .. já í rusli eitthvernveginn


» 3 hafa sagt sína skoðun

30.05.2006 00:10:59 / stefnirg

SLÆMT

þegar ég vaknaði hélt ég í alvöru að þetta yrði einn besti dagur minn í langan tíma .. neinei LANGT því frá .. þetta er öruglega súrasti og leiðinlegasti dagur lífs míns .. mig langar bara að deija á svona stundum ..


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.05.2006 19:34:30 / stefnirg

Söknuður part 2

Ég er bara geðveikt einn í heiminum .. og Japanese Super Shift platan er að verða Tilbúin ..

síðan seinast er ég búinn að .. Hætta í vinnuni 8| SCORE .. sem var gaman .. því að mig langaði ekki að vinna þarna .. sérstaklega með fíflinu honum Radóvan .. en svo voru MJÖG fínir gaurar þarna líka eins og Jóhann, Alli og Ari.. það er leiðinlegt að geta ekki hitt þá lengur .. ALLAVEGANA .. stefnir = EKKI IKEA LAGER VINNUTRÖLL ENÞÁ!!! jæja ..

umm .. ég uppgötvaði svoldið svakalegt .. sem þið fáið samt ekki að vita .. ég er bara að skrifa þetta til að pinta ykkur smá ..

og já Lada FUCKING Sport spilar í Eyjum næstu helgi .. það verður gaman .. en ég ættla að reyna að hanga með pabba og Ellu og littlu syskynum mínum, en þau eru einmitt búsett þar. Ef þau geta fyrirgefið mér það að láta eins og algjör róni .. hafa engin plön til framtíðarinar .. ég veit ekki .. þegar maður missir ALLT þá eitthvernveginn fær maður nýja sín á hlutina... og ekki er það góð sín .. að standa alltíeinu tómhentur og sakna alls .. og þegar ég segji allt þá meina ég allt sem skipti eitthverju máli .. ástina, vinnuna, skólan og gleðina .. ég er bara ekki í góðu fari og það fer vesnandi .. ég átti allt og gekk vel í öllu .. nú á ég ekkert .. og ekkert gengur vel :(

já .. les eitthver þetta? eða er ég að skrifa sjálfum mér bréf? það væri samt oki .. því að ég þarf alveg stundum að koma hugsunum mínum niður í texta svo ég geti flokkað þær .. og þetta blogg hefur hjálpað mér svoldið með það .. ég verð samt oft alveg mikið leiðari eftir að hafa bloggað .. því að þá kemur alltaf það sama í ljós .. líf mitt er að fara meir og meir í rúst ..

kv.Lingsinn þinn (þú veist hver þú ert) :cry:


» 1 hafa sagt sína skoðun

29.03.2006 02:48:59 / stefnirg

Gangur Mála Hér Í Mér ..

Hæ.. ég veit ekki alveg hver les þetta rusl .. en hey, mig langaði bara að segja frá gang mála.. ég er mjög þreyttur .. alltaf .. ég er þó kominn á góða leið með að klára jss plötuna .. bara 4 lög eftir .. og þau eru í vinslu þannig að það er ekkert endalaus tími þangað til að það verður komið! þannig að þið sem eruð eitthvað að pæla í því getið kasnki brosað eitthvað smá .. já, best að copy peista bara laga listann hingað í hvelli svo þið getið vitað hvað það er sem ég er að tala um!!

 

001 - dream team

002 - something strange

003 - pichproppeller

004 - we lost the friends to the pavement

005 - i miss you...

006 - thay will get you

007 - computer world

008 - my fear of solitary

009 - dj.fnnr -vs- Mc.LingsMegaDistortion

010 - look at what we made!

011 - D1G1TAL R0M4NZ3

 

oki .. þá er það komið á hreint.. svo eru öll hin löginn bara b-sæd sem verða gefin út á vinil.. alltaf 2 lög á 7" það gerir svona 5-6  7" 8) ekki amalegt það.. allavegna.. þeir sem vilja vita afhverju ég tala um að "ég sé búinn með x og egi eftir að gera x" þegar þessi lög eru nú þegar tekinn upp að mestum parti, meiga vita það að ég forrita, spila og sing öll löginn upp á nýtt og það gerir það að verkum að nú þegar ég hef dundað mér dágóða stund í upptökuforritum hef ég betri skilning á öllu og þar af leiðandi eru löginn öll mun betri en fyrrum útgefnar útgáfur af þeim. og þegar ég tala um að "ÉG" sé búinn þá meina ég auðvita Okkur 3 í Japanese Super Shift.. bara .. ég sé að svo miklu leiti um upptöku  og mix að ég er bara að meina það.. ekkert meira né minna.. . takk..

 

Ladan er hress.. ég er mjög glaður að ég er með þessum strákum í bandi .. og bara já .. þeir eru vonandi hressir með mig líka .. við erum að gera ágæta hluti þessa dagana .. við erum allavegana ekki að sjúga stæðsta typpi heims eins og við höfum nú gert stundum hérna áður fyrr, neibb við erum allir sáttir með okkar og viljum halda því áframm .. svo eru við líka bara svo skemtilega kúl.. takk

 

já .. nú hef ég aldeilis drullað uppá bak í held ég öllum málum öðrum en þessum með hljómsveitir.. þetta virðist bara vera þannig að eitthver hafi alltíeinu ákveðið að ég ætti alltíeinu að verða betri á hljóðfæri en ég mundi bara taka kraft úr öllu öðru sem ég get hafa gert .. þar á meðal viti.. ég er alltaf þreyttur .. mig langar ekki að gera neitt .. ekki einusinni taka upp, oftast .. en samt fynst mér mjög fátt annað skemtilegt.. og ég er bara auli í ástar málum .. fullkomlega mesta fuck up sögunar í þeim kafla lífs míns .. umm.. ég er egilega búinn að klúðra skólanum .. ekki endilega skóla gönguni en bara því sem ég hef verið að gera .. ég hefði alveg eins geta farið og lamið skólastjóran í pungin og augun.. umm.. umm .. já .. mig langar alveg svakalega að flíja til Japans.. bara fara.. fara bara .. ekki segja neinum .. hverfa .. þangað til að útlendingar eftirlitið finnur mig .. en það er einn stór galli á því .. ég kann MJÖG takmarkaða Japönsku. Þá dettur mér í hug að fara til USA .. það væri alveg GEÐVEIKT .. ég mundi skilja fólk og ég gæti upplifað eitthverskonar svona .. jaa.. fantasíu sem ég hef um bandaríkin, t.d. að allir séu ALLTAF öskrandi í New York og svona .. og bara .. mig langar að byrja uppá nýtt.. en, maður getur aldrei neitt .. maður getur ekkert vegna þess að maður er fastur hér .. á þessari eyju sem er alveg svakalega leiðileg! það eru nú samt alveg nokkrir hér sem mér þykjir mjög vænt um .. en það eru margir sem ég gæti alveg verið án.. en ein manneskja sem ég get ekki veið án .. er bara með ALLT önnur plön virðist vera .. ekki það að það sé eitthvað skrítið .. þannig að ég er fucked..

 

Nei .. veistu, ég flyt ekkert strax, ekki vegna skorts á vilja.. heldur vegna þess að ef ég vinn vel og mikið og legg ágætlega á mig þá get ég kanski fengið lámarks upphæð launa til að líða vel .. jahú.. og ef ég er geðveikt hress alltaf þá skilur fólk mig kanski ekki og heldur að mér líði geðveikt vel .. JAHÚ .. ohhh.. djöfull ... takk

takk fyrir .. ég hef verið flugstjórinn ykkar þessar mínótur sem tók ykkur að lesa þetta .. Stefnir segjir .. bæ


» 3 hafa sagt sína skoðun

26.02.2006 17:33:22 / stefnirg

Okily Dokily..

jæja.. ég var klukkaður :P af Örnu Rún ;)

Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina:

- Unglingavinnan
- Ikea (Sexy, lager vinnu kyntröll)
- Byggingar vinna fyrir Ris og fleiri ömurlega leiðinlega verktaka
- Ég var Róló-vinnu gella
Fjórar myndir sem ég horfi aftur og aftur á:
- Gremlings 1
- Terminator 1
- Terminator 2
- Turtles 2
Fjórir staðir sem ég hef búið á:
- Birtingarkvísl 38
- Bogahlíð 11
- Öldugötu 14
- Tokyo, JAPAN
Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar við:
- Friends
- Simpsons
- Family Guy
- American Dad
Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
 - Island
- Meira Island
- En þá Meira Island
- Og já .. Island :(
Fjórar heimasíður sem ég heimsæki daglega:
- www.vintagesynth.com 
- www.myspace.com/japanesesupershift 
- www.rokk.is 
- www.djamm.is/myndir_af_folki_að_vera_flippað
_og_fullt_og_geðveikt_cool_með_sigarettur 
Fjórar bækur sem ég las seinast:
- Morgunblaðið
- Japanese Spa
- Sjónvarpsvísirinn
- Sjálfsæfi saga Stefnis
Fjórir sem ég skora á að gera þetta:
- Íris Sif Ragnarsdóttir
- Rafnar
- Halla Leví
- BX

» 6 hafa sagt sína skoðun

06.02.2006 11:09:30 / stefnirg

Söknuður

Það eru ákveðin takmörk á hve mannskepnan getur verið heimsk, mér finnst gott að mæla þetta í "heimsku-mörkum/kommum/strikum", t.d. þrír 17 ára krakkar, ein af þeim á stóra systur sem kaupir sér tattoo vél, þau missa sig í gleðinni og fá hana til að tattooa á sig allskyns HEIMSKA hluti, t.d.teiknimynda hauskúpu sem er frekar ljót, en það versta af öllu er að þegar maður spyr einn af þeim sem er með 2+2=5 TATTOOAÐ á sig AÐ EILÍFU, "hva? fílaru þetta lag svona mikið" og hann svarar "ER ÞETTA LAG? HAHAHA EKKI VISSI ÉG ÞAÐ" (240 Heimsku kommur (þetta væri ekki jafn heimskulegt ef þetta væri eitthvað sniðugt í alvörunni)  ... dæmi tvö, ef maður labbar inní skólann sinn á seinasta skóladag fyrir útskrift vopnaður nýjasta nýju í hátækni/sjálfvirkum byssum til að skjóta kennara og aðra samnemendur sem hafa verið að gera honum lífið leitt seinustu árin (og hafið það í huga að okkar maður var búinn að plana þetta í marga mánuði) bara til að fatta það að "hey ÚPS, ég gleymdi skotunum heima" og auðvita var hann settur í fangelsi næstu árin, og hann græddi á þessu, ja EKKI NEITT (160 heimsku kommur fyrir að gera þetta á seinasta skóla daginn sinn HANN HEFÐI GETA FLUTT Í BURTU OG ALDREI SÉÐ ÞAU AFTUR EFTIR TVO DAGA + 300 heimsku kommur fyrir að GLEIMA HELVÍTIS SKOTUNUM HEIMA (þó það hafi nú verið til góðs) samtals 460 heimsku kommur)  ..þriðja dæmið, lífsþreyttur og fátækur maður ætlar sér að ræna banka, bankaverðirnir bregðast rétt við og kalla upp öryggiskerfi sem setur stálvegg milli þeirra og ræningjans, honum bregður og hleypur í átt að hurðinni en þegar hann reynir að opna áttar hann sig á því að hún er "læst", auðvita er maðurinn hræddur, tekur af sér grímuna og röltir um bankann í örvæntingu sinni (það svæði sem ekki var læst af með stálvegg) og bíður þess að lögreglan komi, en eftir stuttu eftir það labbar inní bankann gömul kona sem OPNAR HURÐINA Í RÉTTA ÁTT!!! ég þarf ekki að segja meira..  auðvita tók maðurinn af sér grímuna nóg og lengi til að lögreglan fatti hver hann er (650 Heimsku kommur) .. ég var að teygja þau takmörk um nokkur "heimsku strik" í viðbót við það sem áður hefur þekkts. ímyndið ykkur strák sem klúðrar því besta sem hefur komið fyrir hann, hann átti kærustu sem hugsaði vel um hann, hún var alltaf góð við hann, sagði honum fallega hluti um hann þegar honum leið illa, sagði honum fallega hluti þegar honum leið vel,  þau voru búin að plana framtíðina saman .. hann ætlaði að læra Arkitektúr í Japan, hún ætlaði að fara með, ekki það að hún hafi viljað það eitthvað sérstaklega mikið.. nei, henni þótti bara svo mikið vænt um hann.. hún sagði "ég geri bara eitthvað" einsog það skipti ekki máli hvað þau gerðu bara svo lengi sem þau væru alltaf saman og að hann yrði ánægður! hún var ekki venjuleg stelpa, nei svo sannarlega ekki, hún lét þennan aula ganga gjörsamlega yfir sig, borgaði allt fyrir hann, gaf honum að borða þegar hann var svangur, BARA VEGNA ÞESS AÐ HENNI ÞÓTTI VÆNT UM HANA.. og takið það til greina að þessi strákur hefur ekki átt það svo gott gegnum lífið.. ég fer ekkert nánar útí það því að þetta fífl af manni á ekki skilið vott af vorkunn.. allavegana, hann átti það ekki gott þegar hann var yngri og alveg þangað til fyrsta apríl 2004 (páskafrí) eða s.s. daginn sem hann hitti hana fyrst, hann eyddi eftir þann dag nokkrum næstu nóttum með henni, eina fallega nóttina horfðu þau á myndina hafið, hann sá þá að þetta var stúlka drauma sinna, og að hann mundi gefa allt til að vera með henni. Og eftir að þau höfðu verið vinir í rúma tvo mánuði kom fyrsti kossinn, og alls ekki sá seinasti.. honum hafði aldrei liðið svona vel, hann hélt að nú loksins væru hlutirnir farnir að ganga upp.. sem þeir jú gerðu, hann sá að ef hann ætlaði að fá þessa stelpu til að ganga upp í lífi hans þá þurfti hann að gera eitthvað í sínum málum.. og þar sem hann var ekki að gera neitt við líf sitt var ekki mikið mál að finna út hvað ætti að gera til að byrja með, hann skráði sig í skóla, til að læra grunn fyrir æsku draum sinn um að verða arkitekt eins og áður kom fram, tækniteiknun.. hún lét hann vilja vera betri mann, hugsandi mann og fyrst og fremst ástfangin mann, þau eyddu einu og hálfu yndislegu ári saman, þau gerðu allt saman, þau voru meira segja þekkt hjá mörgum sem krútt parið.. hann elskaði hana meira en allt, hann elskaði hana meira en lífið sjálft, því fyrir honum var hún meira en lífið, hún var honum allt.. hún var sólin, skíinn, loftið, vatnið og jörðin í lífi hans.. þau eiga án efa margar fallegar og skemmtilegar minningar um hvort annað, eins og t.d. þegar þau voru að byrja að hittast og sátu svo lengi útí bílnum hans fyrir utan húsið hennar að tala um allt milli himins og jarðar með kveikt á aðeins ljósunum að hann varð batteríslaus og þau þurftu að vekja foreldra hennar og fá þau til að gefa honum start.. :lol: eða þegar þau löbbuðu heim til hennar í ártúnsholtið frá mh sem tekur svolítinn tíma en var yndislegt og gott.. svo gaman að þau gerðu það aftur, og aftur.. eða þegar hún gaf honum miða á placebo í sautján ára afmælisgjöf árið 2004 .. þau virkuðu eins og gerð fyrir hvort annað.. en auðvita eins og allir karlkyns í þessum heimi þurfti hann að fara að taka hana sem sjálfsögðum hlut .. hann hætti að sína henni hversu þakklátur hann var fyrir allt sem hún gaf honum, pizzu sneiðarnar, fötin o.s.f. þó að hann væri þakklátur í raun, sem ég veit að hann var.. en það er ekki hægt að segja það eftir á býst ég við.. hann sagði heldur aldrei takk fyrir það að hún mætti á alla tónleika sem hann spilaði á með skíta bílskúrsbandinu sínu, sem hann verður ávalt henni þakklátur fyrir.. hann sagði aldrei takk fyrir að hún gerði allt fyrir hann, hún hlustaði á hann röfla um allt sem skipti og skipti hann ekki máli, hann hlustaði aldrei á hana ef hún vildi segja eitthvað.. hann var alltof upptekinn við að vera að pæla í því hvað hann gæti farið að gera "afhverju er ég ekki að horfa á bíómynd langt frammá nótt" í staðinn fyrir að knúsa hana og kela á nóttini eins og hún átti skilið, og hann hugsaði "hey ég veit, best að eiða svona klukkutíma eða svo í tölvunni" í stað þess að knúsa hana og kela eins og hún átti SVO mikið skilið.. hún er fallegasta og umburðalinsta manneskja í heiminum, hún er skemmtilegasta, best innrætta og gáfaðasta manneskja í heiminum, hún er ástæðan fyrir því að mannkynið lifir enþá .. hún er allt gott sem komið hefur fyrir heiminn.. en vitið menn, strákurinn þurfti endilega að fara að tala við sína fyrverandi kærustu yfir netið.. stelpu sem skipti hann engu máli, stelpa sem honum gæti ekki verið meira sama um, en þessi stelpa kom uppá milli hans og hennar.. og að eylífu mun hann sjá eftir heimskulegri ákvörðun um að gera hlut sem hann VISSI að mundi særa hana.. hlut sem ekki nokkur lifandi manneskja á skilið.. hvað þá þessi yndislega manneskja sem hefur ekkert gert nema verið góð við allt og alla, sérstaklega hann.. og ég vona að hún sjái það í sér að fyrirgefa honum og að þau nái saman aftur, þó að það séu ekki miklar líkur á því.. nei, enda á hann það ekki skilið .. (og fyrir ykkur sem eruð ekki búin að ná þessu, þá er ég strákurinn) .. fyrirgefðu ástin mín.. hvar sem þú ert.. sama hvað gerist þá mun ég elska þig, ég mun alltaf elska þig .. og alltaf bíða eftir þér.. þú ert mér allt (5000 heimsku strik fyrir ógeðisskap og heimsku)

 

 :cry:


» 3 hafa sagt sína skoðun

26.01.2006 17:06:23 / stefnirg

Titill

ohhh.. ég er með hausverk :evil: það er verra en allt.. ég vill bara kúra og knúsast, en frst ættla ég að segja ykkur frá GEÐVEIKT töff protékti sem félagi minn hann Jón Þór er með, það heytir dynamo fog og er CRAZY !! www.myspce.com/dynamofog ... tékk it! en já, Lada Sport er á fullu, það er komið nýtt lag tilbúið til spilunar á hvaða útvarðsstöð sem vill okkur 8) það er lagið "royal suits and wine" og við erum sáttir með okkar í því lagi :) en já eins og áður kom framm.. þá vill ég knús og koss.. ég held að ég fari bara og reddi því :) eða eftir svona kl: tíma allavegana .. vonandi :D


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.01.2006 20:14:27 / stefnirg

Stefnir

hey.. gleðileg jól. ég hef voða lítið að segja 8| ég elska þennan gaur samt 8| já .. hér mun ég skrifa.. og hér www.myspace.com/japanesesupershift


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.09.2005 15:29:06 / stefnirg

nyu- moushikomi

Shai tameni sannyuu za amimono

 

ho-pu yu- sankan kotoatarashiku

 

http://www.freedict.com/onldict/jap.html



 :haha:


» 5 hafa sagt sína skoðun

29.09.2005 15:10:22 / stefnirg

ohhhh, klukk smukk :(

ég var klukkaður, skilst mér :S ég veit ekki alveg hvað það þýðir en ég held að ég eigi að skrifa 5x hluti um sjálfan mig...

1. Ég er kallaður Lingsi af þeim sem þykir virkilega vænt um mig.:lol:

2. Ég fíla að spila á syntha og gítara :haha:

3. Ég er c.a. 1,92 cm á hæð (nokkuð stór) 8|

4. Ég er í 2x hljómsveitum sem heita Big-Kahuna & Lada Sport

5. Japanese Super Shift er nafn sem ég fattaði vegna þess að ég fíla Japan í drasl :haha:

 

jæja, ég er nú búinn af þessu :) þá ætla ég að klukka engan ...


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.09.2005 15:30:59 / stefnirg

SHIT BEASTY BOYS SHIT

Vááá, hvað mér leiðist akkúrat núna L ég vildi að ég væri í villtu party með BoB og Jakóbínurínu og Lödu Sport og Big-kahuna on MILLJÓN öðru frésssss fólki, en nei.. neineineineieneieneienei … hér sit ég í TTÖ 203 og er að fá meiri og meiri hausverk, og hér er ekki frésss fólk, hér er ANTI-fréss fólk…

 

 



HEY ÞÚ … LANGAR ÞIG AÐ FÁ BESTA HLUT Í HEIMINUM, HLUT SEM LÆTUR ÖLLUM LANGA AÐ VERA ÞÚ OG/EÐA MEÐ ÞÉR.. FÁÐU ÞÉR ÞÁ …

 

 



…:::ÍRIS SIF RAGNARSDÓTTIR:::…

 

 



Ég er búinn að eiga mína í c.a. 1 og hálft ár og hún virðist bara verða betri eftir því sem hún eldist. Ég mæli sterklega með henni sem GJÉLLU.IS ... ekki taka mína samt, þá lem ég þig.

 

 



Hey ég fæ turtles 1,2 & 3 um mánaðar mótin ásamt mega man 1,2,3,4,5,6,7,8 og tvo japanska arcade leiki sem komu aldrei út PPPPPPPAAAAARRRRRTTTTTTYYYY


» 77 hafa sagt sína skoðun

25.08.2005 15:32:36 / stefnirg

NÝ MEGA FÆRSLA Í TÖLVU DAGBÓK (SEM ER OPINN ÖLLUM OG ER ÞAR AF LEIÐANDI DRASL) STEFNIRS

Jæja, þá er skólinn byrjaður, ég er sáttur, svolítið skrítin tafla kannski en JEY SKÓLINN :haha: ég er til 12:20 á Mán og Mið. og til 5 á Þrið. Fimm. og Föst :( svolítið gróft, ég er ekki alveg hress með það, en.. það er svosem oki :D Ég er í TTÖ 203 akkúrat núna sem er frá 12:20 til 5 og það er ERFITT :cry: en annars er ég GEGT FRESKÓ IN MY HEAD ;)  ég er ennþá í LADA SPORT... BIG-KAHUNA og leynibandi ;) en já það kemur seinna... nú langar mér að lýsa yfir gremju minni með ekki neitt! búinn... ég hata fólk sem kvartar yfir ÖLLU, eins og ég, nema asnalegt fólk. en jæja..

það eina sem ég er ósáttur með er að með skólanum kemur að ég þarf að sofa heima.. einn, engin Íris og Stefnir :cry: stundum áttar maður sig ekki á hversu heppin maður er fyrr en maður missir það ... OG ÞAÐ ER ÖMULLLLEGT

ég fékk mér PLAYSTATION 200000000 :D það er svona aðeins að að redda mér í gegnum þetta, ég á einmitt SONIC MEGA COLLECTION PLUS :D ég er að fara að fá mér líka MEGA MAN afmælis útgáfuna :haha: það verður GEÐVEIKT gaman :D það eru semsagt fyrstu 8 leikirnir í upprunnalegu formi og 2 nýir. MEGA, þá bíð ég Heimi Gest í heimsókn og það verður...

8| MEGA MAN KEPPNI 8|

 

jæja, ofur gálan & gelgjan Stefnir kveður að sinni..


» 86 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3